Skólaheilsuvernd 

 

Skólaheilsuvernd á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Þrír grunnskólar og einn menntaskóli eru innan svæðis heilsugæslunnar í Borgarnesi, Grunnskólinn í Borgarnesi, Laugargerðisskóli og grunnskóli í uppsveitum Borgarfjarðar sem deilist niður í þrjár starfsstöðvar á Varmalandi, Kleppjárnsreykjum og  Hvanneyri.
Menntaskóli Borgarfjarðar er staðsettur í Borgarnesi.

Heildarfjöldi nemenda í grunnskólunum er um 700 alls og í menntaskólanum  um 160.

 

Hjúkrunarfræðingar sinna skólaheilsugæslunni en læknir kemur einu sinni á skólárinu í grunnskólana.

 

Hjúkrunarfræðingar í skólaheilsugæslunni sjá um skoðanir og annað eftirlit samkvæmt reglum landlæknis, bjóða upp á viðtalstíma í skólanum og sjá um skipulagða heilbrigðisfræðslu sem byggist á hugmyndarfræðinni um 6-H heilsunnar.
Hjúkrunarfræðingar sitja í nemendaverndaráði skólanna þar sem tekið er á sértækum málum er koma upp varðandi nemendur. Hjúkrunarfræðingar sjá um að útbúa möppu um börn sem eru með bráðasjúkdóma og sjá um fræðslu og upplýsingar til starfsfólks skólans og íþróttahússins um þá.

Hjúkrunarfæðingar eru með sérstaka meðferð fyrir börn, unglinga og foreldra þeirra sem eiga við offituvanda.

 

Starfsfólk skólaheilsugæslunnar starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn nemenda og starfsfólk skólans með velferð nemenda að  leiðarljósi og er markmið skólaheilsugæslunnar að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðun þeirra.

 

 

Síðast uppfært 26.05.2010

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE