Mæðravernd
Fyrirkomulag
Verðandi foreldrum er boðið að koma í viðtal til ljósmóður. Fylgst er náið með framvindu meðgöngunnar og foreldrar fá fræðslu og stuðning til að takast á við ný verkefni. Æskilegt er að komið sé í fyrstu skoðun ekki seinna en í 10-12 viku meðgöngu. Að meðaltali eru skoðanir í mæðravernd 8-12 en fer þó allt eftir þörfum hvers og eins. Ljósmóðir mæðraverndar starfar í nánu samstarfi við fæðingalækna sem bjóða þunguðum konum upp á ómskoðun í 20-34. viku meðgöngu. Einnig sinna fæðingalæknar sérhæfðu eftirliti á meðgöngu.
Við skipulag mæðraverndar er tekið mið af klíniskum leiðbeiningum um Meðgöngu heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu.
Foreldrafræðslunámskeið
Reglulega eru haldin námskeið fyrir verðandi foreldra þar sem m.a. er frætt um:
- frjóvgun og fósturþroska
- meðgöngukvilla og verkjameðferð
- slökun og öndun
- fæðinguna
- sængurlegu og brjóstagjöf
Skoðanir í mæðravernd HVE Borgarnesi
Fimmtudaga kl. 8.30-16.00
Sónarskoðanir eru á Akranesi
Mánudaga 13.00-16.00, fæðingalæknir
Miðvikudaga 13.00-16.00, ljósmóðir
Ljósmóðir er Hafdís Rúnarsdóttir
Tímapantanir í mæðravernd sími 432 1430
Síðast uppfært 15.04.2011