Læknisþjónusta
Við HVE Borgarnesi starfa að jafnaði þrír læknar sem sinna allri almennri læknisþjónustu sem veitt er í heilsugæslu. Þeir eru með viðtalstíma og símatíma alla virka daga. Læknir er alltaf á vakt og sinnir þá öllum bráðatilfellum sem upp kunna að koma, vaktsíminn er 112.
Læknarnir sinna ungbarnavernd og skólaheilsugæslu ásamt hjúkrunarfræðingum og þeir koma að mæðravernd í samvinnu við ljósmóðir. Læknar HVE Borgarnesi veita einnig læknisþjónustu við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
Sérfræðilæknar:
Augnlæknir kemur að jafnaði einu sinni í mánuði.
Síðast uppfært 30.04.2010