Hjúkrunarþjónusta
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöð vinna í samræmi við markmið hjúkrunar á stofnuninni.
Sérstök áhersla er lögð á
að efla og styrkja heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldunnar
að hvetja einstaklinginn til sjálfsumönnunar og ábyrgðar á eigin heilbrigði
markvissa fræðslu til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys
að veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra sem þurfa heimahjúkrun góða einstaklingshæfða þjónustu, stuðning og fræðslu
Við hjúkrun á heilsugæslustöð HVE Borgarnesi starfa fimm hjúkrunarfræðingar, ein ljósmóðir og tveir sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingarnir vinna í náinni samvinnu við heilsugæslulækna og aðra sérfræðinga starfandi á HVE.
Hjúkrunarfræðingar, ljósmóðir og sjúkraliðar heilsugæslunnar vinna m.a. við
- heimahjúkrun
- mæðravernd
- ung-og smábarnavernd
- skólaheilsuvernd
- ljósameðferð vegna húðsjúkdóma
- bólusetningar og lyfjagjafir
- sárameðferð
- eftirlit og mælingar
- fræðslu og ráðgjöf
- lífstílsbreytingar vegna offitu
- sykursýkismóttöku
- slysastofu
- röntgenmyndatökur og rannsóknir
Símatímar hjúkrunarfræðinga eru á milli 11:40 og 12:00 alla virka daga, hægt að panta símatal í síma 432 1430.
Síðast uppfært 15.04.2011