Heimahjúkrun

 

Heimahjúkrun á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Markmið heimahjúkrunar

Að gera einstaklingnum kleift að dvelja heima eins lengi og unnt er þrátt fyrir veikindi og/eða skerta færni.


Þjónusta heimahjúkrunar

Heimahjúkrun er veitt á dagvinnutíma.
Vegna fjarlægðar innan svæðis er ekki mögulegt að veita sömu þjónustu í dreifbýli eins og i þéttbýli.

 

Hjúkrunarfræðingur kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörf, síðan er þjónustan skipulögð með tilliti til þarfa þjónustuþega.

Heimahjúkrun gefur sér allt að 72 klst fyrirvara á fyrstu vitjun til nýrra þjónustuþega.
Heimahjúkrun er fagleg þjónusta sem er breytileg eftir þörfum þjónustuþega. 
Útskrift úr heimahjúkrun fer fram í samráði við þjónustuþega.

 

Athygli er vakin á eftirfarandi

Heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta vinna náið saman.
Markmið  heimahjúkrunar er að eiga gott samstarf við þjónustuþega, aðstandendur og fagfólk.
Heimahjúkrun getur ekki dvalið hjá eða vakað yfir sjúklingnum.

 

Hópstjórar í heimahjúkrun eru

Rósa Marinósdóttir hjúkrunarfræðingur

Anna Baldrún Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur

Guðbjörg S Sigurðardóttir sjúkraliði

 

Helstu símanúmer

432 1430

 

Breyting á högum

Fari þjónustuhafi að heiman eða verði breytingar á högum hans er nauðsynlegt að láta heimahjúkrun vita í síma 432 1430.

 

Umsókn um heimahjúkrun

Umsókn um heimahjúkrun getur komið frá einsaklingi, aðstandendum, lækni eða sjúkrahúsi.
Umsókn getur bæði verið skrifleg eða gegnum síma.

 

Símatímar kl. 11.40 -12.00 alla virka daga í síma 432 1430.

 

Þjónusta við eldri borgara í Borgarfirði...
 

 

Síðast uppfært 15.04.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE