Heilsuvernd og forvarnir
Heilsuvernd og forvarnir sjúkdóma miða að því að koma í veg fyrir sjúkdóma eða heilsufarsvanda og draga úr fylgikvillum þeirra.
Helstu greinar heilsverndar sem sinnt er á heilsugæslustöðvum eru mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæsla, heilsuvernd aldraðra, ónæmisvarnir, ráðgjöf um kynheilbrigði, geðvernd, áfengis-, tóbaks- og fíkniefnavarnir, slysavarnir, skipulögð sjúkdómaleit og almenn heilbrigðisfræðsla.
Bólusetningar gegn Inflúensu
Besta vörnin gegn inflúensu er að láta bólusetja sig, en hún gefur 60 – 90 % vörn hjá einstaklingum yngri en 65 ára. Hjá öldruðum er vörnin aðeins minni. Bólusetningin dregur einnig úr alvarlegum fylgikvillum sýkingarinnar.
Sóttvarnalæknir mælir með árlegri bólusetningu áhættuhópa sem eru meðal annars eftirfarandi:
Allir einstaklingar eldri en 60 ára.
Allir einstaklingar undir 60 ára sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Ákveðið hefur verið að þessir hópar fái bóluefnið sér að kostnaðarlausu en þeir þurfa að greiða komugjald á heilsugæslustöð.
Einnig viljum við minna á bólusetningu gegn lungnabógu, einstaklingar sem eru bólusettir eru varðir í 10 ár nema þeir séu með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma þá eru þeir varðir í 5 ár.
Boðið er upp á bólusetningar í fyrirtækjum.
Enn er verið að bólusetja gegn H1N1 svínaflensu og landlæknir mælir með að allir láti bólusetja sig. Þessi bólusetning er einstaklingum algjörlega að kostnaðarlausu.
Síðast uppfært 26.05.2010