Um HVE Akranesi

 

HVE Akranesi skiptist í sjúkrahús og heilsugæslustöð.

 

Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness og hefur jafnframt forystuhlutverk varðandi heilsuvernd og forvarnarstarf.

 

Sjúkrahúsið er deildaskipt sjúkrahús. Aðal upptökusvæðið er vestur- og norðvesturhluti landsins.  Veitt er fjölþætt sérfræðiþjónusta með viðbúnaði til móttöku og meðferðar bráðveikra allan sólarhringinn.  Íbúum höfuðborgarsvæðisins og öðrum landsmönnum er í vaxandi mæli boðin sérfræðiþjónusta í tilteknum greinum.

 

HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.   Starfsmenn HVE Akranesi eru um 240 talsins. 

 

 

Ársskýrsla SHA 2009

Ársskýrsla SHA 2008

Ársskýrsla SHA 2007

Ársskýrsla SHA 2006 

 

Saga SHA 1952 - 2002...

 

Síðast uppfært 13.10.2010

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE