Rannsóknadeild
Deildarstjóri Eyjólfur Harðarson
Sími 432 1020
Fax 432 1038
Tölvupóstur rannsokn@hve.is
Staðsetning: Deildin er til húsa á jarðhæð í elsta hluta sjúkrahússins. Auðveldast er fyrir fólk utan úr bæ að koma inn um gamla aðalanddyrið Heiðarbrautar megin.
Almennt um deildina
Blóðsýni eru tekin á göngudeild alla virka daga kl. 8-12 og 13-14, einnig er tekið á móti öðrum sýnum á sama tíma. Dagvinna er frá 8-16 og bakvakt eftir það allan sólarhringinn.
Við deildina starfa fjórir lífeindafræðingar, auk tveggja sjúkraliða.
Fjöldi rannsókna á deildinni er ríflega 100 þúsund á ári.
Starfsemi / hlutverk
Í nóvember 2008 tók rannsóknastofan upp Flexlab tölvukerfi í samvinnu við rannsóknastofu LSH. Frá og með þeim tíma fara öll svör í blóðmeinafræði og klínískri lífefnafræði í sameiginlegan grunn með svörum frá LSH, HSU og HSS og eru þar með aðgengileg læknum HVE um leið og lífeindafræðingur staðfestir svörin.
Helstu þættir starfseminnar eru:
Blóðmeinafræði
Gerðar eru blóðkornarannsóknir, blóðstrok, vökvarannsóknir, storkurannsóknir.
Klínísk lífefnafræði
Hér eru gerðar lífefnafræðilegar rannsóknir til greiningar á sjúkdómum, til mats á áhættu á að fá sjúkdóma og til að fylgja eftir meðferð. Boðið er upp á allar algengar meinefnafræðirannsóknir.
Sýklafræði
Meginstarfssvið sýklafræðideildarinnar er þjónusturannsóknir fyrir sjúkrahúsið og heilsugæslustöðvarnar á starfssvæði HVE. Rannsóknastofan fæst við almennar bakteríuræktanir.
Blóðbanki
Á rannsóknastofunni eru gerðar blóðflokkanir og X-próf. Í sérstökum blóðgeymslukæli er ávallt til ákveðinn fjöldi eininga af rauðblóðkorna þykkni og í frysti er ávallt til ákveðinn fjöldi af frosnu plasma.
Síðast uppfært 12.04.2011