Myndgreiningadeild

 

Deildarstjóri Gróa Þorsteinsdóttir
Sími 432 1090 
Fax 432 1001
Tölvupóstur rontgen@hve.is

Staðsetning:  Deildin er staðsett á 1. hæð sjúkrahússins á læknagangi. 


Almennt um deildina

Við deildina starfa þrír geislafræðingar.  Röntgenlæknar koma tvisvar í viku. Deildin er opin kl. 8 - 15 virka daga, en utan dagvinnutíma er sólarhrings bakvakt á deildinni.

Á deildinni eru framkvæmdar rúmlega 6000 rannsóknir á ári. Skipting er þannig að um það bil 40% sjúklinga eru inniliggjandi og um 60% utanspítala.

Í byrjun árs 2007 var tekið í notkun tölvusneiðmyndatæki sem sjúkrahúsið fékk að gjöf. Þetta tæki hefur aukið greiningagildi deildarinnar gríðarlega.  

 

Starfsemi / hlutverk

Deildin sinnir öllum almennum röntgen- tölvusneiðmynda- og ómrannsóknum á sjúklingum sjúkrahússins og einnig á utanspítalasjúklingum. Allar rannsóknir sem gerðar eru á deildinni eru á tölvutæku formi og eru vistaðar í sameiginlegum gagnagrunni á LSH. Úrlestur rannsókna fer yfirleitt fram samdægurs og læknar HVE hafa rafrænan aðgang að niðurstöðum.

 

Síðast uppfært 12.04.2011 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE