Læknaritaramiðstöð

 

Deildarstjóri Rósa Mýrdal
Sími 432 1030
Fax 432 1001
Tölvupóstur læknaritarar 
Staðsetning: Deildin er staðsett á 1. hæð í norðausturálmu elsta hluta sjúkrahússins.


Almennt um deildina

Við deildina starfa auk deildarstjóra sex læknaritarar og tveir ritarar við skjalavörslu í samtals 7,5 stöðugildum. Auk þess hefur deildin tekið læknaritararnema í starfsþjálfun í allt að sex mánuði í senn. Markmið starfsmanna deildarinnar er að vinna faglega og kappkosta að veita sem besta þjónustu.

Deildin er opin á dagvinnutíma kl. 8-16 alla virka daga.

 

Starfsemi/hlutverk

Meginhlutverk deildarinnar er meðferð heilbrigðisupplýsinga, s.s. skipuleg skráning, kóðun, úrvinnsla og vistun. Deildin annast m.a. skjalastjórnun, eftirlit með meðferð upplýsinga ásamt miðlun þeirra  til lögmætra aðila innan heilbrigðiskerfisins. Auk þess sér deildin um kennslu og gæðaeftirlit með skráningu í rafræna sjúkraskrá ásamt mörgum öðrum fjölbreyttum verkefnum er varða meðferð sjúkraskrár og sjúkraskrárupplýsinga.

Starfsemin byggist á faglegri þekkingu læknaritara og unnið er samkvæmt gildandi reglum á HVE.

 

 

Síðast uppfært 12.04.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE