Endurhæfing

 

Deildarstjórar Ingibjörg Óskarsdóttir sjúkraþjálfari og

Sigrún Ásmundsdóttir iðjuþjálfi
Sími (sjúkraþjálfun) 432 1167 og 432 1166 
Sími (iðjuþjálfun) 432 1160
Fax 432 1001

Staðsetning: Deildin er staðsett í jarðhæð heilsugæsluálmu.


Almennt um deildina

Endurhæfing er hluti af þeirri læknisþjónustu sem veitt er við HVE Akranesi í dag. Markmið er að veita almenna alhliða endurhæfingu og hefur megináhersla verið lögð á þjónustu við inniliggjandi sjúklinga á öllum deildum stofnunarinnar. Jafnframt er veitt göngudeildarþjónusta. Til endurhæfingar heyra sjúkra- og iðjuþjálfun.
Við deildina eru starfandi tveir sjúkraþjálfarar og einn iðjuþjálfi ásamt aðstoðarmanni.

 

Starfsemi / hlutverk

Aðalverkefni sjúkraþjálfunar eru: Færniþjálfun og æfingar, vöðvategjur, tog og liðlosun, hiti og kæling, nudd, rafmagnsmeðferð, ráðgjöf og fræðsla, skoðun og prófanir. 
 

Aðalverkefni iðjuþjálfunar eru: Æfingameðferð, færnimat og færniþjálfun, vitrænt mat og þjálfun, hjálpartæki, mat á þörf og aðlögun, heimilisathuganir, virkni og viðhaldsþjálfun, fræðsla /forvarnir /ráðgjöf. 
 

 

Síðast uppfært 12.04.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE