Skurð- og svæfingadeild
Yfirlæknir Björn Gunnarsson svæfingalæknir
Deildarstjóri skurðstofu Ólafía Sigurðardóttir
Deildarstjóri svæfingadeildar Guðrún M. Halldórsdóttir
Sími 432 1140
Fax - SHA 432 1001
Tölvupóstur dagdeild@hve.is
Staðsetning: Deildin er staðsett á skurðstofugangi á 2. hæð sjúkrahússins.
Almennt um deildina
Deildinni tilheyra skurðstofur, svæfingadeild og dagdeild skurðdeildar. Deildin hefur til umráða þrjár skurðstofur, vöknun og aðstöðu fyrir dagdeildarsjúklinga. Við deildina starfa tveir svæfingalæknar og ásamt þeim skurðhjúkrunarfræðingar, svæfingahjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, starfsstúlkur og ræstingafólk, auk sérfræðinga sem getið er hér á eftir.
Árlega eru gerðar um það bil 2000 aðgerðir á deildinni. Á deildinni er vaktþjónusta allan sólarhringinn.
Helstu aðgerðir á deildinni eru
- Kviðsjáraðgerðir, s.s. kviðslitsaðgerðir, gallblöðrutaka, aðgerðir við bakflæði (Nissen), greiningaraðgerðir o.fl.
- Almennar skurðlækningar, s.s. maga- og garnaaðgerðir, kviðslitsaðgerðir, æðahnútaaðgerðir, hjáveituaðgerðir, endaþarmsaðgerðir, auk þess krabbameinsaðgerðir, t.d. v/ristil- og brjóstakrabbameins. Botnlangaaðgerðir.
- Bæklunarskurðaðgerðir m/áherslu á liðskiptiaðgerðir á mjöðmum og hnjám, táskekkjuaðg., liðspeglanir, axlaraðgerðir, brotaaðgerðir og neglingar.
- Slysaaðgerðir.
- Háls- nef- og eyrnaaðgerðir, s.s. háls- og nefkirtlatökur, rör, ástungur, ýmis konar nefaðgerðir, slysaaðgerðir vegna áverka á andlitsbeinum o.fl.
- Kvensjúkdómaaðgerðir, s.s. ýmsar stærri aðgerðir tengdar kvensjúkdómum, svo sem legnám, brottnám eggjastokka og eggjaleiðara, aðgerðir vegna blöðru-, leg- og endaþarmssigs o.fl.
- Ýmsar smærri aðgerðir vegna kvensjúkdóma, s.s. kviðarholsspeglanir, blöðruspeglanir, útskaf, ófrjósemisaðgerðir, fóstureyðingar ofl.
- Keisaraskurðir, bráðakeisarar, fæðingaaðgerðir.
Starfsemi svæfingadeildar
- Svæfingar og deyfingar í ofangreindum aðgerðum.
- Verkjameðferð vegna bráðra- og langvinnra verkja v/slysa og sjúkdóma.
- Ísetning holæðarleggja o.fl.
- Flutningur slasaðra og mikið veikra sjúklinga t.d. á önnur sjúkrahús.
Sérfræðingar á deildinni
Björn Gunnarsson yfirlæknir sérfræðingur í svæfingum og deyfingum
Rún Halldórsdóttir læknir, sérfræðingur í svæfingum og deyfingum
Edward Kiernan, yfirlæknir, sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp
Fritz H. Berndsen yfirlæknir, sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Jón Ingvar Ragnarsson læknir, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum
Kári Knútsson læknir, sérfræðingur í alm. skurðlækningum og lýtalækningum
Þórir Bergmundsson læknir, sérfræðingur í háls- nef- og eyrnalækningum
Síðast uppfært 12.04.2011