Öldrunarlækningadeild
Yfirlæknir Ólafur Þór Gunnarsson
Deildarstjóri Þórlína Sveinbjörnsdóttir
Heimsóknartími: Deildin er opin fyrir heimsóknir allan daginn.
Sími 432 1130
Fax 432 1001
Tölvupóstur e-deild@hve.is
Staðsetning: Deildin er staðsett á 2. hæð í elsta hluta sjúkrahússins.
Almennt um deildina
Öldrunarlækningadeild er 15 rúma deild.
Við deildina starfa öldrunarlæknir ásamt læknum lyflækningadeildar. Á deildinni eru 3,4 stöðugildi hjúkrunarfræðinga og 11,1 stöðugildi sjúkraliða, ásamt starfsfólki í býtibúri og ræstingum. Einnig starfa daglega á deildinni sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfi.
Starfsemi / hlutverk
Meginhlutverk deildarinnar er að veita umönnun, hjúkrun og lækningar á sviði öldrunar. Lögð er áhersla á endurhæfingu aldraðra.
Starfsemi deildarinnar hefur verið að breytast síðustu misserin frá því að vera að hluta hjúkrunardeild í að verða eiginleg öldrunarlækningadeild. Áhersla er þannig lögð á að stytta legur og auka endurhæfingu og hvíldarinnlagnir. Stór hluti sjúklinganna kemur nú inn til 4-5 vikna dvalar með þátttöku í virku endurhæfingarprógrammi sem öldrunarlæknir stýrir í samvinnu við sjúkra- og iðjuþjálfa.
Gengið er út frá því að sjúkrahús séu ekki heimili einstaklinga heldur meðferðarstofnanir og þegar meðferð lýkur geti þeir flust til hjúkrunarheimila eða aftur til síns heima.
Við umönnun og hjúkrun starfar eingöngu fagfólk á sviði hjúkrunar, þ.e. hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar. Á deildinni er að hluta til unnið eftir svokölluðu "tenglakerfi".
Ýmis þjónusta stendur sjúklingum til boða, svo sem fótsnyrting og hársnyrting sem er í höndum fagfólks á því sviði.
Sérfræðingar á deildinni
Ólafur Þór Gunnarsson læknir og sérfræðingur í almennum lyflækningum og öldrunarsjúkdómum
Síðast uppfært 12.04.2011