Lyflækningadeild


Yfirlæknir Sigríður Þ. Valtýsdóttir
Deildarstjóri Valdís Heiðarsdóttir
Heimsóknartímar...

Sími 432 1100
Fax 432 1001
Tölvupóstur a-deild@hve.is 
Staðsetning: Deildin er staðsett á 3. hæð sjúkrahússins.

 
Almennt um deildina

Lyflækningadeildin er 18 rúma legudeild sem er opin allan sólarhringinn og veitir almenna og bráða þjónustu í lyflækningum.  Deildin sinnir jafnframt dagdeildarþjónustu á sviði lyflækninga.
Flestir sjúklingar sem leggjast inn koma vegna bráðra veikinda, eða um 70%. Heildarfjöldi innlagna er um 700 á ári og meðaldvalartími er tæplega 6 dagar. Fjöldi dagdeildarsjúklinga er rúmlega 300 á ári og hefur þessi þáttur starfseminnar farið vaxandi.

Við deildina eru starfandi fjórir sérfræðilæknar og einn deildarlæknir. Á deildinni eru leyfi fyrir 8 stöðugildum hjúkrunarfræðinga, 8 stöðugildum sjúkraliða og 1 stöðugildi deildarritara.


Starfsemi / hlutverk

Á deildinni er vaktþjónusta sérfræðings allan sólarhringinn og til staðar er sérfræðiþekking  í almennum lyflækningum, meltingarfærasjúkdómum, nýrnasjúkdómum, gigtsjúkdómum og lungnasjúkdómum.  Meginhlutverk deildarinnar er að veita almenna og bráða þjónustu í lyflækningum. Auk þess sinnir deildin sjúklingum með langvinna sjúkdóma og starfar í nánu samstarfi við líknarteymi.  Nú nýverðið var tekin í notkun ný aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra.

 

Sérfræðingar á deildinni

Sigríður Þ. Valtýsdótir, yfirlæknir og sérfræðingur í lyflækningum og gigtsjúkdómum,
Þorvaldur Magnússon læknir og sérfræðingur í lyflækningum og nýrnasjúkdómum,

Trausti Valdimarsson læknir og sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum,
Stefán Þorvaldsson læknir og sérfræðingur í lyflækningum og lungnasjúkdómum
 


 Síðast uppfært 12.04.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE