Kvennadeild


Yfirlæknir Edward Kiernan
Deildarstjóri Anna Björnsdóttir

Sími 432 1113
Fax 432 1001
Tölvupóstur c-deild@hve.is 

 

Almennt um deildina

Kvennadeildin er 10 rúma deild, staðsett í norðurálmu á 2. hæð sjúkrahússins.  Deildin er opin allan sólarhringinn. Vaktþjónusta sérfræðinga er allan sólarhringinn.
Meginhlutverk deildarinnar er að veita alla almenna þjónustu og bráðaþjónustu tengda kvensjúkdómum, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Einnig er veitt göngudeildarþjónusta á meðgöngu og eftir fæðingu.
Innlagnir á deildina eru um 500 á ári. Tæpl. 300 fæðingar eru á deildinni á ári hverju. Fjöldi aðgerða tengdar kvensjúkdómum og fæðingum er um 450 á ári.

 

Starfsfólk

Á deildinni starfar sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp, auk þess ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og deildarritari ásamt starfsfólki í býtibúri og ræstingum.


 
Sérfræðingar á deildinni

Edward Kiernan, yfirlæknir, sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp

 


 

Síðast uppfært 01.06.2011  

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE