Handlækningadeild
Yfirlæknir Fritz H. Berndsen
Deildarstjóri Guðjóna Kristjánsdóttir
Heimsóknartími
Sími 432 1110
Fax 432 1001
Tölvupóstur b-deild@hve.is
Staðsetning: Deildin er staðsett á 2. hæð sjúkrahússins.
Almennt um deildina
Handlækningadeild er 10 rúma legudeild sem opin er allan sólarhringinn.
Deildin veitir alla almenna þjónustu á sviði handlækninga, bráðatilvika og slysa. Deildin sinnir einnig slysadeild sjúkrahússins. Vaktþjónusta sérfræðinga er allan sólarhringinn.
Á deildinni starfa fjórir sérfræðingar auk deildarlæknis. Sérfræðiþekking er í almennum skurðlækningum, bæklunarskurðlækningum, lýtalækningum og háls- nef- og eyrnalækningum. Einnig starfa á deildinni hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, deildarritari ásamt starfsfólki í býtibúri og ræstingum.
Fjöldi innlagna á deildinni er um 6-700 á ári, þar af eru um 32 % bráðainnlagnir.
Á deildinni eru gerðar um 600 aðgerðir á ári. Stór hluti aðgerða lækna deildarinnar fer fram á Dagdeild skurðdeildar.
Starfsemi / hlutverk
Almennar skurðlækningar
Á deildinni eru framkvæmdar margskonar aðgerðir sem flokkast undir almennar skurðlækningar, má þar nefna kviðsjáraðgerðir, s.s. kviðslitsaðgerðir, gallblöðrutöku, aðgerðir við bakflæði (þindarsliti), greiningaraðgerðir o.fl. Auk þess æðahnútaaðgerðir, endaþarmsaðgerðir, krabbameinsaðgerðir, t.d.vegna ristilkrabbameins.
Bæklunarskurðlækningar
Á deildinni eru framkvæmdar fjölmargar bæklunarskurðaðgerðir. Stærstur hluti þeirra eru liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám, um það bil 120 slíkar aðgerðir eru gerðar á ári hverju. Auk þess táskekkjuaðgerðir, axlaraðgerðir, og aðgerðir og neglingar vegna ýmissa beinbrota og slysa.
Lýtalækningar
Á deildinni eru framkvæmdar stærri lýtaaðgerðir svo sem brjóstaminnkanir og svuntuaðgerðir. Auk þess aðgerðir eftir slys.
Háls- nef- og eyrnalækningar
Á deildinni eru framkvæmdar háls- og nefkirtlatökur, ýmis konar nefaðgerðir o.fl.
Sérfræðingar á deildinni
Fritz H. Berndsen dr. med., yfirlæknir og sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Kári Knútsson læknir og sérfræðingur í almennum skurðlækningum og lýtalækningum
Jón Ingvar Ragnarsson dr. med. læknir og sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum
Þórir Bergmundsson læknir og sérfræðingur í háls- nef- og eyrnalækningum
Síðast uppfært 12.04.2011