Slysa- og aðgerðastofa

 

Yfirlæknir Fritz H. Berndsen

Deildarstjóri Guðríður Guðmundsdóttir
Sími 432 1040 
Fax 432 1001
Tölvupóstur slysadeild@hve.is

Staðsetning: Deildin er staðsett á 1. hæð sjúkrahússins, á læknagangi.


Almennt um deildina

Deildin er opin kl. 8 - 16 virka daga, auk þess er bráðaþjónusta allan sólarhringinn en þeirri þjónustu er sinnt frá handlækningadeild eftir kl. 16.

Árlega eru nýkomur vegna slysa tæplega 2000 og endurkomur 16-1700 talsins. Heildarfjöldi aðgerða á deildinni eru ríflega 1000 árlega, þar með taldar speglanir sem eru yfirleitt um það bil 600 á ári.

Á deildinni starfa tveir hjúkrunarfræðingar.  Aðstoðarlæknar sjúkrahússins sinna hverju sinni móttöku slasaðra og endurkomum. Auk þess sinna sérfræðingar sjúklingum deildarinnar eftir aðstæðum hverju sinni.

  

Starfsemi / hlutverk

Starfsemi deildarinnar skiptist í eftirfarandi þætti

 

Slysastofa

Móttaka fyrir slasaða og bráðveika sjúklinga er opin allan sólarhringinn. 

 

Endurkomur

Móttaka sjúklinga sem þurfa á eftirliti að halda eftir slys eða aðgerðir. Helstu þættir í þeirri starfsemi eru sáraskiptingar, gipsskiptingar, saumataka o.fl.  

 

Aðgerðastofa

Magaspeglanir og  ristilspeglanir.  Á deildinni eru einnig framkvæmdar ýmsar minni háttar aðgerðir sem ekki þurfa svæfingar við.  Algengustu aðgerðirnar eru ýmsar smáaðgerðir á húð, fjarl. fæðingarblettir, vörtur, neglur og minni háttar bæklunaraðgerðir, einnig  nálasýnatökur t.d. frá  brjóstum o.fl. 
 

Sérfræðingar sem starfa við deildina:

Fritz H. Berndsen yfirlæknir, sérfræðingur í almennum skurðlækningum

Kári Knútsson læknir, sérfræðingur í almennum skurðlækningum og lýtalækningum

Jón Ingvar Ragnarsson læknir og sérfræðingur í  bæklunarskurðlækningum

Trausti Valdimarsson læknir og sérfræðingur í  lyflækningum og meltingarsjúkdómum

 

 

Síðast uppfært 12.04.2011 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE