Dagdeild skurðdeildar

 

Yfirlæknir Björn Gunnrsson
Deildarstjóri Guðrún M. Halldórsdóttir
Aðstoðardeildarstjóri og umsjón biðlista  Þóranna Halldórsdóttir
Sími 432 1140
Fax 432 1001
Tölvupóstur dagdeild@hve.is  
Staðsetning: Deildin er staðsett á skurðstofugangi á 2. hæð sjúkrahússins. 


Almennt um deildina

Dagdeildi skurðdeildar er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 08:00 - 16:00.
 
Á deildinni eru gerðar aðgerðir, sem ekki þarfnast innlagnar á sjúkrahús, í almennum skurðlækningum, bæklunarskurðlækningum, lýtalækningum og háls- nef- og eyrnalækningum og kvensjúkdómum. Auk þess eru á deildinni gerðar tannaðgerðir sem þarfnast svæfinga.
Aðgerðir eru framkvæmdar af sérfræðingum sjúkrahússins en tannaðgerðir eru framkvæmdar af sérfræðingum utan stofnunar.


Biðlistar og innkallanir í aðgerðir

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild hefur umsjón með biðlistum skurðlækna og sér um að kalla sjúklinga inn í aðgerðir. Meginreglan er sú að sjúklingar eru kallaðir inn með a.m.k viku fyrirvara.
 
Símatími hjúkrunarfræðings vegna biðlista er kl. 13:00-14:00 þriðjudaga til föstudaga.

 

Nánari upplýsingar

Fræðslubæklingur um fyrirhugaðar aðgerðir á Dagdeild skurðdeildar

Fræðsla um aðgerðir - fræðsla fyrir sjúklinga... 
 

 

 

Síðast uppfært 12.04.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE