Ung- og smábarnavernd
Fyrirkomulag
Hjúkrunarfræðingur hefur samband við fjölskyldu stuttu eftir fæðingu barns og býður þjónustu sína. Hjúkrunarfræðingur vitjar foreldra og barns fyrstu vikurnar eftir
fæðingu og fylgist með þroska barnsins og fræðir foreldrana um umönnun þess.
Hjúkrunarfræðingar, heilsugæslulæknar sjá um reglubundnar skoðanir í ung- og smábarnavernd. Fastar skoðanir eru nú 12 talsins en boðið er upp á aukaskoðanir eftir þörfum.
Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef þeir geta ekki mætt í bókaðan tíma og geri ráðstafanir til að fá annan tíma.
Ef barnið er veikt á ekki að koma með það í ungbarnavernd heldur leita til heilsugæslulæknis.
Foreldrar eru hvattir til að leita til hjúkrunarfræðinga ung- og smábarnaverndar eftir ráðgjöf og fræðslu. Ef ekki næst í hjúkrunarfræðing er hægt að leggja inn skilaboð hjá símavakt, sem kemur boðunum áleiðis.
Hjúkrunarfræðingar ungbarnaverndar eru
Síðast uppfært 12.04.2011