Akranes - Skólaheilsuvernd
Þrír grunnskólar eru innan svæðis heilsugæslunnar á Akranesi. Heildarfjöldi nemenda í þessum þrem skólum er um 1000 alls. Læknir kemur í skólann einu sinni í viku á meðan skólinn starfar en a.ö.l. sinna hjúkrunarfræðingar skólaheilsugæslu.
Flúorskolun er reglulega allan veturinn hjá öllum nemendum. Sérstök tannverndarfræðsla er fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Hjúkrunarfræðingur situr í nemendaverndarráði skólans ásamt skólastjóra, sálfræðingi og sérkennurum. Þar er sérkennsla skipulögð og tekið á sértækum málum er koma upp varðandi nemendur. Reynt er að finna sem bestar lausnir fyrir nemendur og er þetta vaxandi þáttur í starfi skólaheilsugæslu. Einnig situr skólahjúkrunarfræðingur í teymi gegn einelti og í áfallaráði.
Hjúkrunarfræðingur sér um að koma upplýsingum og fræðslu til starfsfólks skólans og íþróttahúss ef upp koma sértæk sjúkdómstilfelli í skólanum.
Fræðslubæklingar
Heilsuvernd grunnskólabarna
Síðast uppfært 30.04.2010