Mæðravernd

 

Mæðravernd á heilsugæslustöðvum HVE...

  

Fyrirkomulag

Verðandi foreldrum er boðið að koma í viðtal til ljósmóður. Fylgst er náið með framvindu meðgöngunnar og foreldrar fá fræðslu og stuðning til að takast á við ný verkefni. Æskilegt er að komið sé í fyrstu skoðun ekki seinna en í 10-12 viku meðgöngu. Að meðaltali eru skoðanir í mæðravernd 8-12 en fer þó allt eftir þörfum hvers og eins. Ljósmóðir mæðraverndar starfar í nánu samstarfi við fæðingalækna sem bjóða þunguðum konum upp á ómskoðun í 20-34. viku meðgöngu. Einnig sinna fæðingalæknar sérhæfðu eftirliti á meðgöngu.


Við skipulag mæðraverndar er tekið mið af kíniskum leiðbieningum um Meðgöngu heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu.

 

Foreldrafræðslunámskeið

Reglulega eru haldin námskeið fyrir verðandi foreldra þar sem m.a. er frætt um:

  • Frjóvgun og fósturþroska
  • meðgöngukvilla og verkjameðferð
  • slökun og öndun
  • fæðinguna
  • sængurlegu og brjóstagjöf

 

Skoðanir í mæðravernd HVE Akranesi

  • Mánudaga  08.00-16.00
  • Miðvikudaga 08.00-16.00
  • Fimmtudaga 08.00-12.00

 

Sónarskoðanir eru:

  • Mánudaga 13.00-16.00, fæðingalæknir
  • Miðvikudaga 13.00-16.00, ljósmóðir

 

Deildarstjóri mæðraverndar: Elín Sigurbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC.

Sími:  432 1079

Netfang: maedravernd@hve.is

Tímapantanir í mæðravernd eru í síma 432 1000.

 

Mæðravernd - fræðsla...

 

Síðast uppfært 12.04.2011 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE