Hjúkrunarþjónusta

 

Hjúkrunarþjónusta á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöð vinna í samræmi við markmið hjúkrunar á stofnuninni.

 

Sérstök áhersla er lögð á

  • að efla og styrkja heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldunnar
  • að hvetja einstaklinginn til sjálfsumönnunar og ábyrgðar á eigin heilbrigði
  • markvissa fræðslu til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys
  • að veita skjólstæðingum sem þurfa heimahjúkrun góða einstaklingshæfða þjónustu, stuðning og fræðslu

 

Við hjúkrun á heilsugæslustöð HVE Akranesi starfa níu hjúkrunarfræðingar og af þeim er einn með ljósmæðramenntun. Auk þess starfa tveir sjúkraliðar við heimahjúkrun.

Hjúkrunarfræðingarnir vinna í náinni samvinnu við heilsugæslulækna og aðra sérfræðinga starfandi á HVE.


Hjúkrunarfræðingar heilsugæslunnar vinna m.a. við

  • heimahjúkrun
  • mæðravernd
  • ung-og smábarnavernd
  • skólaheilsuvernd
  • starfsmannaheilsuvernd
  • ljósameðferð
  • bólusetningar og lyfjagjafir
  • sáraskiptingar og umbúðaskiptingar
  • eftirlit og mælingar
  • fræðslu og ráðgjöf

 

 

Síðast uppfært 10.05.2010

 


 

 

 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE