Heimahjúkrun
Markmið heimahjúkrunar
Að gera einstaklingnum kleift að dvelja heima eins lengi og unnt er þrátt fyrir veikindi og/eða skerta færni.
Þjónusta heimahjúkrunar
Heimahjúkrun er vaktþjónusta og er veitt á eftirfarandi tímum:
Virka daga kl. 08-16
Um helgar kl. 09-14
Öll kvöld kl. 19-22
Hjúkrunarfræðingur kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörf, síðan er þjónustan skipulögð með tilliti til þarfa þjónustuþega.
Heimahjúkrun gefur sér allt að 72 klst fyrirvara á fyrstu vitjun til nýrra þjónustuþega.
Heimahjúkrun er fagleg þjónusta sem er breytileg eftir þörfum þjónustuþega.
Útskrift úr heimahjúkrun fer fram í samráði við þjónustuþega.
Athygli er vakin á eftirfarandi
Heimahjúkrun vinnur í náinni samvinnu við félagslega heimaþjónustu.
Markmið heimahjúkrunar er að eiga gott samstarf við þjónustuþega, aðstandendur og fagfólk.
Heimahjúkrun getur ekki dvalið hjá eða vakað yfir sjúklingnum.
Heimahjúkrun óskar eftir því að þjónustuþegar virði rétt starfsfólks um reyklaust vinnuumhverfi.
Helstu símanúmer
Deildarstjóri heimahjúkrunar: Hallveig Skúladóttir.
Símatími kl. 08:00 - 09:00 virka daga, sími 432 1085.
Netfang: hallveig.skuladottir@hve.is
Netfang heimahjúkrunar : heimahjukrun@hve.is
Vaktsími heimahjúkrunarer 896 6015
Vaktsíminn er opinn sem hér segir:
Um helgar kl. 09-14.
Öll kvöld kl. 19-22.
ATH! vaktsími er ekki neyðarsími.
Breyting á högum
Fari þjónustuhafi að heiman eða verði breytingar á högum hans er nauðsynlegt að láta heimahjúkrun vita, í símatíma heimahjúkrunar, með því að senda tölvupóst eða tala inn á talhólf vaktsíma.
Síðast uppfært 12.04.2011