Heilsugæslustöð

 

Yfirlæknir Reynir Þorsteinsson
Hjúkrunarframkvæmdastjóri Ragnheiður Björnsdóttir
Sími 432 1000 
Fax 432 1002

Opnunartími símaafgreiðslu kl. 07:45 - 19:00 virka daga

Vaktsími heilsugæslulæknis 112

 

Almennt um heilsugæslustöðina

Heilsugæslustöð hefur verið starfrækt á Akranesi frá árinu 1976. Heilsugæslustöðin er staðsett á miðhæð í heilsugæsluálmu, sem tekin var í notkun 1992. Starfssvæði stöðvarinnar nær frá botni Hvalfjarðar að Hafnarfjalli. Fjöldi íbúa á starfssvæðinu var 7173  þann 1. des 2010.
Starfsfólk stöðvarinnar eru 20 manns í 13 stöðugildum, þar af fjorir heilsugæslulæknar. Heildarfjöldi skráðra samskipta íbúa heilsugæslusvæðisins við starfsfólk á árinu 2010 var 46.869.

Hver íbúi svæðisins kemur að meðaltali þrisvar í viðtal á ári og hefur þar að auki tvisvar samband eftir öðrum leiðum. Eru þá ótalin ýmis samskipti við hjúkrunarfræðinga sem ekki eru tölvuskráð, s.s. í skólaheilsugæslu.

 

Þjónusta stöðvarinnar

Á heilsugæslustöðinni er veitt eftirfarandi þjónusta skv. lögum:

  • Almenn læknisþjónusta heilsugæslulækna og vaktþjónusta 
  • Almenn hjúkrunarþjónusta  
  • Sérfræðiþjónusta
  • Heilbrigðisfræðsla  
  • Heilsuefling  
  • Heimahjúkrun  
  • Mæðraeftirlit  
  • Ungbarnaeftirlit  
  • Skólaheilsugæsla  
  • Krabbameinsleit  
  • Ljósameðferð  
  • Ónæmisaðgerðir 
  • Heilsuvernd aldraðra 
  • Heyrnarvernd 
  • Sjónvernd 
  • Hópskoðanir 
  • Umhverfisheilsuvernd 
  • Starfsmannaheilsuvernd 
  • Sjúkraflutningar

 

Síðast uppfært 02.11.2011 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE